Halló, vertu velkominn á heimasíðu grallarans!
Ég heiti Ragnar Gabríel Árnason og er 6 ára!

SÍÐAST UPPFÆRT 11 Febrúar 2010.
Ég fæddist á Landspítalanum 11 febrúar 2005 kl 22.30 og er því 5 ára! Þegar ég fæddist þá var Idol í sjónvarpinu og ég fæddist akkúrat þegar þátturinn var hálfnaður, en þetta var þátturinn sem Helgi Þór datt út. Sumum fannst ég því eiga að heita Helgi, en ég er sáttur við nafnið mitt... og er sannkallað Idol :D
Ég fæddist meðal maður getum við sagt, eða 16 og hálf mörk og 52 cm. :o)
Ég fæddist með dökkt hár og dökk augu, en í dag er ég með rauðgullið hár og dökkblá augu.
Ég er leikskólastrákur og finnst fátt skemmtilegra en að vera á leikskólanum og leika við krakkana og ég elska allt er tengist Indiana Jones og Star Wars!
Og ekki spillir fyrir að Kristófer Smári, litli bróðir er kominn á leikskólann og við leikum mikið saman :)
Mamma mín heitir Sigurrós og pabbi heitir Árni.
Ég á stóra systir sem heitir Elínrós og er hún 9 ára og er ofsalega glöð, ánægð, góð og ljúf við mig. Svo á ég lítinn bróðir sem fæddist 14 október 2007 og ég því stóri bróðir!
Allir aðrir hlutar síðunnar eru læstir, lykilorðið er bærinn sem pabbi er frá, en ekki vera feimin við að biðja um lykilorðið :o)
Mamma og Pabbi
Þið verðið stundum vansæl,
víst er ég ósköp lítill.
Set merki um mig út um allt,
ykkur þreytir vaskur trítill.
En einn dag verð ég eldri,
já einn dag er ég stór.
Því tíminn líður skelfing hratt,
þið undrist hvernig fór.
Hér minnismerki fáið,
þá munið þið vel og skiljið,
hve litla hendur hafði ég
þau ár sem ég var smár
Stjörnumerkið mitt
20. janúar - 18. febrúar
Vatnsberabarnið fer fljótt sínar eigin leiðir hvort sem það er í fataburði, hugsun eða hegðun. Það er uppfinningasamt, frumlegt og fullorðinslegt og lærir snemma að tjá sig og skilja heim fullorðinna. Litli vatnsberinn vill sjá um sig sjálfur og fara sínu fram og er oft á tíðum mjög dramatískur. Ef honum leiðist gæti hann átt það til að stofna til vandræða bara til að fá spennu og drama inn í líf sitt. Besta uppeldisaðferðin er fólgin í umræðu og skynsamlegum fortölum. Vatnsberinn er þrjóskur og lítið þýðir að skipa honum fyrir eða beygja hann til hlýðni með skömmum. Best er að koma fram við barnið sem vitsmunalegan jafningja því vatnsberinn er hugarorkumerki og því skipa umræður og skynsamlegar fortölur fyrsta sæti. Vatnsberabörnin geta sýnt ást og væntumþykju á frekar ópersónulegan hátt. Þau eru yfirleitt vingjarnleg og yfirveguð en ekki mjög tilfinningasöm og oft illa við mikið kjass.
Stóra systir mín
Elínrós
Litli bróðir
Kristófer Smári
--------------
Ekki vera feimin við að skrifa í gestabókina :o)
Vinir mínir
Sigmundur Nói
Benedikt Snær
Arndís María
Hildur Embla
Iðunn Valgarðdóttir
Þorri Valgarðsson
Tryggvi Gautur
Júlíus Arnar
Grindavíkur Börn
Einar Ólafur
Benedikt Blær
Elva Rún
Viktor Már
